Færslur

15 Einföld Sparnaðarráð

Mynd
Bíllinn hennar Slaugu. ,,Ég skil ekki hvernig allir þessir námsmenn eiga efni á bíl.“   Þetta sagði eldri maður við mig um daginn þegar hann sá alla bílana í Stúdentagörðum. Ég gat ekki annað en samsinnt honum, en benti þó á að ég á sjálf bíl. Það tók mig samt nokkur ár að   safna fyrir honum, og það getur verið fokdýrt að reka hann. En vegna fötlunar minnar hafði ég þó lítið val, ólíkt sumu fólki. Þessir námsmenn hafa líklega safnað fyrir sínum bíl, eða tekið smálán. Smálán eru samt ALLS ekki sniðug, þar sem þau margfaldast oft með tímanum út af því að háir vextir eru lagðir á lága upphæð. Eða kannski eiga þessir stúdentar ríkan pabba, hver veit?  En það eru oft kostir og ókostir við ýmsa hluti, eins og til dæmis bílakaup, og við þurfum þá að velja og hafna. Við þurfum oft að velja og hafna þegar kemur að ráðstöfun fjármuna. Sumir fá himinháar tekjur á meðan aðrir rétt ná að klóra sig í gegnum daginn með nokkrar krónur. Sömuleiðis er fólk með mismunandi...

Bak-þankar

Mynd
Mynd tekin mánuði eftir aðgerð. Ég veit, ég er alltaf að tala um bakið á mér, en þetta er síðasta spammið í bili. Ég lofa. P.S. Neðar í greininni er mynd af skurðinum, svo þú mátt búa þig undir smá óþægilega sjón. Ástæðan fyrir því að ég skrifa þetta er sú að ég vil veita öðru fólki innsýn í það hvernig er að vera með sjaldgæfan taugahrörnunarsjúkdóm og gangast undir stóra bakaðgerð. Við upplifum hlutina á mjög ólíkan hátt og sömuleiðis er mismunandi hvernig þeir ganga hjá okkur, en samt má alltaf læra eitthvað af reynslu annarra. Sjálf fannst mér ég mjög heppin að geta rætt við aðra sem höfðu lagst undir hnífinn og látið laga á sér hrygginn. Það var líka áhugavert að bera saman aðgerðirnar og sjá hvað sumt var líkt en annað ekki. Þess vegna ætla ég að rifja upp þegar ég fór í þessa aðgerð, hvernig hún gekk fyrir sig og hvernig mér leið. Ég fór í þessa bakaðgerð 5. júni sl. Laga þurfti skekkjur á svæði L4 og T4 á hryggnum á mér, en skekkjan var komin vel yfir ásættanleg m...

Baráttan við bakið

Mynd
Hryggjarskekkja (e. scoliosis) er eitthvað sem margir kannast við. Það er eðlilegt að vera með örlitla skekkju, svo lengi sem hún fer ekki yfir fjörutíu gráður. Ef skekkjan fer yfir þau mörk getur hún haft heilsuspillandi áhrif og þá þarf að athuga með hana. Ég var bara krakki þegar fyrst fór að örla á hryggjarskekkju hjá mér. Í kjölfarið var ég send í röntgen-myndatöku. Fyrstu myndirnar staðfestu smá skekkju, en ekkert sem læknirinn taldi alvarlegt.   Eftir það hef ég verið send nokkrum sinnum í viðbót í röntgen til að fylgjast með bakinu. Það eru nefnilega margir með minn sjúkdóm sem fá slæma hryggjarskekkju, en það er ekki vitað fyrir víst hvers vegna. Tilgátur eru uppi um að líkami okkar hafi ekki nægilegan styrk til að halda hryggnum uppi og að taugakerfið spili þar inn í, en það hefur þó ekki verið almennilega sannað svo ég viti til. Sjúkra- og iðjuþjálfarar hafa haft auga með mér í gegnum árin, kennt mér rétta líkamsbeitingu og útvegað mér ýmis hjálpartæki á bo...

Íslenskt táknmál í útrýmingarhættu: Hvað getum við gert?

Mynd
- Íslenskt táknmál (ÍTM) er jafnrétthátt íslensku skv. lögum.   Þrátt fytir það er þetta fallega mál í útrýmingarhættu að mati sérfræðinga, og hafa margir áhyggjur af því. Ég var mjög ung þegar ég kynntist ÍTM fyrst. Það var þegar eldri systir mín missti heyrnina og öll fjölskyldan þurfti að læra íslenskt táknmál. Svo missti ég sjálf heyrnina og byrjaði formlega   að læra ÍTM á leikskóla fimm ára gömul. En þrátt fyrir að hafa byrjað að læra ÍTM ung finnst mér ég enn í dag ekki kunna málið nægilega vel. Það er líklega skólakerfinu að kenna, ég lærði bara ÍTM í sjö ár í grunnskóla og engar kröfur voru gerðar um að læra málfræðina. Í táknmálstímum lásum við upp sögur á táknmáli, spiluðum og spjölluðum. Kennararnir voru ekki táknmálsfræðingar og sumir höfðu jafnvel engin kennsluréttindi.   Það var ekki fyrr en í menntaskóla sem ég   áttaði mig á því hve takmörkuð þekking mín á ÍTM   væri. Ég ákvað nefnilega að taka stöðupróf í   ÍTM. Þegar ég spurði...

Úr tilraunaeldhúsi Slaugu

Mynd
Slauga á pítsunámskeiði á Ítalíu 2017. , ,Y ou are what you eat.“ Þessa setningu hef ég oft fengið að heyra í gegnum tíðina. Þegar ég stundaði lyftingar á fullu var mælt með því að ég borðaði nóg af hollum og næringaríkan mat fyrir æfingar og sagan endurtók sig í boxi og Crossfit. Maturinn sem ég borða á nefnilega ekki bara að veita orku, heldur líka næringu. Það skal viðurkennt strax að ég er ekki hollustufrík, sérstaklega ekki þegar ég var unglingur.Þá var ég alltaf að gleyma að borða og þegar ég borðaði vildi ég helst bara það sem mér fannst gott, eins og pizzur, nammi og bakkelsi. Sjúkraþjálfarinn minn tók eftir því og var óþreytt við að telja upp allar kaloríurnar. Ég man að það var til dæmis skíðatæki á æfingarstöðinni sem mældi vegalengd í hringjum. Ég var oft að nota þet ta tæki og þjálfarinn grínaðist með að ég gæti fengið einn hring af snúð fyrir hvern hring af skíði, þannig að ég fór oft marga hringi í einu. En nóg um það, ég er ekki eins sjúk í óhollan m...

Að vera eða ekki vera aktivisti

Mynd
Ég er ung fötluð kona í háskólanámi. Ég hef mína drauma og mínar væntingar, en ég veit að á sama tíma og ég hef réttindi hvíla líka á mér skyldur. Ég var reyndar mjög ung þegar ég kynntist hagsmunabaráttu. Í raun var ég bara um það bil sex ára, þegar ég varð vitni að stjórnarfundi hagsmunafélags foreldra heyrnarlausra   barna í stofunni heima hjá mér. Ég vissi ekki þá hvers konar starfsemi væri í gangi, ég skildi bara að þetta væri mikilvægur fundur. Síðan þá hef ég alltaf borið virðingu fyrir þriðja geiranum, og haft áhuga á starfsemi hagsmunafélaga. Ungliðastarfið heillar Ég var þrettán ára þegar ég var kosin í nemendaráð í skólanum mínum. Ég hafði mikinn áhuga og vildi leggja mitt af mörkum. Fljótlega uppgötvaði ég þó eitt, ég var mjög háð   öðru fólki þegar kom að þátttöku í nemendaráði. Ég þurfti túlka og aðstoðarfólk en á þessum tíma hafði ég ekki eigið aðstoðarfólk. Ég var bara með liðveislu nokkur kvöld í mánuði og þurfti því að velja vel   hvernig é...

Nýárspístill Slaugu

Mynd
„Úff, ég vona að ég sé ekki fallin“ sagði ég við túlkinn eftir síðasta lokapróf haustannarinnar. Ég dæsti og hugsaði með sjálfri mér: fallin í tölfræði eða fallin í lífinu? Ég ákvað að vera ekkert að spá frekar í þessu og drífa mig að pakka. Ég ætlaði nefnilegaað eyða jólunum á Spáni með fjölskyldunni. Þar ætluðum við að heimsækja ættingja, slaka á og njóta lífsins. Og í leiðinni ákvað ég að taka mér frí frá skjánum, ekkert Facebook, Twitter eða mail í bili. Bara textaskilaboð og smá Instagram. Ekkert óþarfa áreiti, bara slöku Taugarnar höfðu vægast sagt verið þandar síðustu vikur. Til að byrja með tók ég þá ákvörðun að sækja um stúdentaíbúð, enda komin með meira en nóg af að búa í  foreldrahúsum. Ég sá einnig fram á að vera í skóla næstu árin, svo stúdentaíbúð var kannski bara málið. Auk þess er ég alls ekki ein af þeim sem vilja helst bara kaupa sitt eigið hús, en það er víst önnur saga. Áður en ég vissi af var ég farin að skoða íbúðir og bara búin að finna draumaíbúðina. Það ...