Færslur

Túlkamálið: Fjárlög vs. Mannréttindi

Mynd
Allir þátttakendur sumarbúðanna í Svíþjóð 2017.  Við systur sátum við morgunverðarborðið og vorum að ræða námið okkar. Hún þurfti að skrifa helling af ritgerðum í stjórnmálafræði á meðan mér fannst ég alltaf í hlutaprófum í viðskiptafræði. Þá mundi ég að ég þyrfti að klára eitt verkefni í lögfræði, en þrátt fyrir að viðskiptalögfræði væri ein af uppáhalds greinum mínum var ég ekki mjög spennt fyrir henni þennan morgun.                 „Til hvers að læra lögfræði?“ spurði ég sjálfa mig upphátt og vísaði til þess að ég tapaði máli gegn ríkinu og Samskiptamiðstöð nýlega.                 Systir mín dæsti en benti mér á að lögfræði gæti nú alveg komið að einhverju gagni. Ég samsinnti henni, en bætti þó við að ef til vill kæmi lögfræðin ekki að gagni þegar kæmi að mannréttindum.         ...

Daufblinda alla leið

Mynd
Sænski listamaðurinn og rithöfundurinn Torbjörn Svensson er með Usher II. Mynd fengin að láni úr einkasafni. Ég er daufblind. Ég missti heyrnina í kringum 5 ára aldur en fékk kuðungsígræðslu 7 ára þannig að ég heyri smá með hjálp heyrnartækis. Sjónin hefur alltaf verið slæm, en hún fór þó versnandi með árunum, fimm ára var  ég fjarsýn, 8 ára sjónskert og í dag er ég lögblind. Ég sé enn eitthvað, en þó aðeins úr meters fjarlægð skýrt auk þess sem sjónsviðið er eins og út úr klósettpappírsrúllu. Þrátt fyrir að vera daufblind, fannst orsök þessarar tvöföldu fötlunar  ekki fyrr en ég var 15 ára. Lengi vel töldu læknarnir að ég væri með Usher, en að lokum leiddi DNA-greining í ljós að ég væri með BVVL, sem er afar sjaldgæfur taugahrörnunarsjúkdómur. En hvað er daufblinda? Hvað veldur daufblindu? Og hvernig getur daufblint fólk haft samskipti. Hvað er daufblinda? Daufblinda er samþætt sjón- og heyrnarskerðing. Daufblinda getur verið annaðhvort síðbúin eða meðfædd eft...

Umræðan um starfsgetumat: Ef þú getur gert 9 armbeygjur áttu að vinna 90% starf

Mynd
Hvað er að frétta? Já, alveg rétt, Alþingi var að hefjast á ný eftir sumarið og svo datt ríkisstjórnin bara í sundur. Slaugan klórar sér nú í hausnum yfir öllu sem er að gerast í íslenskri pólitík. Það er nefnilega það að pólitík hefur mun meiri áhrif á okkur öll en margir halda. Það er Alþingi sem sker út um hvort fólk fái mannsæmandi heilbrigðisþjónustu, geti sótt sér menntun og geti lifað sjálfstæðu lífi. Alþingi setur lög sem hafa áhrif á líf okkar og það er hlutverk ríkisstjórnarinnar að framkvæma þau. Slaugu langar nú að ræða um áform um svokallað starfsgetumat. Starfsgetumat  er m.a. skilgreint sem heildrænt mat á líkamlegri, andlegri og félagslegri getu einstaklingsins í því skyni að veita honum einstaklingsmiðaða endurhæfingu og draga úr ,,vinnuletjandi“ þáttum, hvað svo sem það nú þýðir. Með matinu er geta viðkomandi til að afla eigin tekna metin og miðað að því að virkja hann enn frekar. En hvað er  starfsgeta ? Eftir því sem Slaugan kemst næst ...

Reduction of Interpreters in Finland: An Absurd Situation

Mynd
  Turku 2013 Deaf and hearing impaired people often use interpreters to commuicate with hearing people. The interpreters can be either sign language interpreters, special deafblind interpreters, scriptwriters or even international interpreters. Sign language differs from country to country and as do the systems that provide the interpretation services. But the need for the service is always there, no matter where in the world the user lives. According to the 9th article of the Agreement of the United Nations on the Rights of People With Disabilities, countries should secure the right for disabled people to access information, for example by providing interpreting service. All the countries of Scandinavia have signed and agreed to the agreement. Iceland is the only country which still has not fully sealed it by law but Finland was the latest country in Scandinavia to do it. Even so, it looks like the rights of people with disabilities in Finland are not fully respected, ...

Áskorun á Alþingi að lögfesta NPA

Enn eina ferðina á að rjúfa þing snemma. Í þetta skipti er það af því að fólkið í ríkisstjórninni gat ekki  treyst hvort öðru. Eins og flestir vita slitnaði upp úr ríkisstjórninni eftir að upplýsingar um kynferðisbrotamenn sem fengu uppreist æru voru birtar. Þingið verður því rofið í lok október og þangað til þarf það að ákveða hvaða mál skuli rædd á þessum stutta tíma.        Ástæðan fyrir því að ég skrifa þetta er sú að ég hef þungar áhyggjur af framvindu mála. Ég er 21 árs fötluð kona sem reiði mig á aðstoð annarra í daglegu lífi. Ég er í fullu háskólanámi, stunda íþróttir og félagsstarf. Til að geta gert alla þessa sjálfsögðu hluti þarf ég aðstoðarfólk og er því með NPA-samning (Notendastýrð persónuleg aðstoð). Staðreyndin er þó sú að NPA er enn bara tilraunaverkefni hérlendis og það rennur út núna um áramótin.        Fyrir seinustu kosningar lofuðu flestir flokkarnir að lögfesta NPA og var stefnt að því að láta af því verða í lok ...

Þegar skólinn hefst á ný

Mynd
Slauga á leið í klifur í Svíþjóð, sumarið 2017. Mynd úr einkasafni. Slaugan er svo glöð! Hún er glöð af því að sumarið var geggjað. Hún er glöð af því að jólin nálgast. Og hún er svo glöð af því að skólinn er byrjaður. Á meðan sumir myndu eflaust dæsa og hugsa til sumarsins með mikilli eftirsjá, er Slaugan syngjandi sæl á fyrsta skóladeginum. Ekki af því að sumarið var svo leiðinlegt, ó nei, heldur af því að skólinn er málið! Ný stundatafla, nýjar skólabækur, nýir kennarar, lögfræði, þjóðhagfræði, fjármál og utanríkisverslun. Og svo auðvitað ,,vekjaraklukkan“ að pikka í mann eldsnemma á morgnana. Þetta kallast sko alvöru rútína. Svo má ekki gleyma öllu skóladjamminu sem er alls ekki leiðinlegt! Slaugan ætlar sér sko að njóta þess að vera annars árs nemi í viðskiptafræði og vonast til að læra eitthvað í hausinn á sér. Hún heldur nefnilega að menntun skipti máli og sé í raun mannréttindi.  Hún veit líka að ekki allir í heiminum hafa tækifæri til að mennta sig, þrát...

Að leyfa fötluðu barninu sínu að finna sig sjálft

Mynd
Lítil Slauga að klifra upp í tré. Mynd úr einkasafni. Ég sat einu sinni fyrirlestur hjá blinda umferliskennaranum Daniel Kish  . Kish missti sjónina rúmlega eins árs, en þrátt fyrir það hefur hann vakið mikla athygli vegna þess hve sjálfstæður hann er. Hann kom til Íslands til að halda fyrirlestur árið 2013 og fjölmiðlar fóru á flug við að fjalla um hvað þessi gaur væri ótrúlegur. Hann var ótrúlegur af því að hann er alveg blindur en sást samt ganga upp Esjuna án stuðnings og hjóla um alveg einn síns liðs. Þetta þótti mörgum ótrúlegt í ljósi þess að maðurinn sæi ekki neitt. Það er nefnilega það að margir halda að það að hafa einhverja fötlun þýðir að sá fatlaði geti lítið. Slíkt viðhorf kallast ableismi, en eins og orðið gefur til kynna þýðir það að einhver sem sér fatlaðan einstakling heldur að viðkomandi hafi mjög skerta getu (e. able). Þetta er í raun frekar nýlegt hugtak og flókið, en snýr að hugmyndum fólks um útlit, fegurð og þess háttar. Ég las um daginn að...