Færslur

Hvað er að frétta, ableismi?

Mynd
Slauga og Snæja við Gróttu. Mynd  úr einkasafni. Aaaatsssjúúúúú! Afsakið hnerrann, Slaugan hérna er bara með bráðaofnæmi fyrir fötlunarfordómum. Rakst á grein þar sem höfundur taldi ákveðinn hóp fatlaðs fólks ekki vera fatlað því það hefði ekki sömu hagsmuna að gæta. Bíddu við, ha? Hefur ófatlað fólk þá allt sömu hagsmuni? Hvað er annars að því að vera fatlaður einstaklingur? Ég bara spyr... Almenn skilgreining á fötlun er andleg eða líkamleg skerðing sem veldur því að fólk mætir hindrunum í daglegu lífi því það passar ekki inn í staðla sem samfélagið setur. Þannig gerir samfélagið ekki ráð fyrir fjölbreytileikanum og dæminu er í raun snúið við, samfélagið er fatlaði aðilinn í sambandinu því það skortir víðsýni og  skilning. Þetta er allavega félagslega nálgunin á fyrirbærinu fötlun, sem ég hef áður greint frá í  bloggfærslunni um klofna kerfið. Ég er fötluð og er 21 ára viðskiptafræðinemi við Háskóla Íslands. Ég er fædd á Akureyri og er daufbli...

Grunnskólaárin sem í móðu #GameOver

Mynd
Grunnskólaárin mín eru sem í móðu, sérstaklega síðustu þrjú árin. Kannski var ég bara svo viðkvæmur unglingur, en ég veit að það er ekki bara það. Ég var orðin eldri, farin að líta í kringum mig og skilja hvernig málum var í raun háttað. Mig langar að segja frá grunnskólagöngu minni. Ástæðan fyrir því að ég skrifa hér um reynslu mína af grunnskólanámi er einfaldlega sú að ég get ekki setið lengur hjá og látið eins og ekkert sé. Ég lít á sjálfa mig sem aktivista, en á sama tíma eru sumir hlutir sem ég hef reynt að forðast. Svo þegar #metoo byltingin hófst sá ég að sá möguleiki að stíga fram og opna sig væri raunverulegur. Ef svona margar konur geta sagt frá kynbundnu og kynferðislegu áreiti og ofbeldi, þá hlýt ég að mega segja frá minni reynslu. Ég er orðin þreytt á að þegja, og hef enga löngun til að missa alveg geðheilsuna. Þess vegna ætla ég að rífa í gömul sár, ég ætla að greina frá því sem leynist í þoku fortíðarinnar. Þið megið svo „drusluskamma“ mig eins og ykkur ...

Living with RTD

Mynd
Slauga and her sister both have RTD Type 2. Picture taken in 2010, before RTD diagnosis.  I am legally blind, became totally deaf at age of 5, started having balance issues at around the age of 10, started using a wheelchair shortly thereafter and was diagnosed with RTD Type 2 when I was 15... Why am I counting all these things yet again? And why am I writing in English, not Icelandic? Well, the reason is simple: this article is for all the people in the world that have RTD. What is RTD? RTD is not Resources Dependence Theory, as some business managers might think. In fact, RTD stands for Riboflavin Transporter Deficiency, which is a rare neurological genetic disorder.   Formerly known as Brown-Vialetto-Van Laere (BVVL) or Fazio-Londe (FL) syndrome, an estimated one in 1 million people worldwide are born with RTD according to the Cure RTD Foundation.   RTD is caused by genetic mutations in the genes that make riboflavin transporter proteins in the ...

Guest Blogger: "My thoughts about human rights"

Mynd
Frida Bertzell Ejnerby. Mynd úr einkasafni. Hey guys! Áslaug asked me if I wanted to write an article to her blog, I said yes so here I am. I will write about what I think about human rights because I think it is important! Before I start I would like to say that I am not used to write in English. I will try my best. Now I will tell you about myself: My name is Frida, I am from Sweden, I am 21 years young and I am hearing and visually impaired. I and Áslaug met on the Nordic young camp in Stockholm. I will just talk about the most important things according to me. Nobody has the right to change how you should be and how you look like. We all are human with different characteristics and it makes us unique. Nobody is perfect and you are most comfortable when you can be yourself. I think that all people have the right to belong the sexual orientation they want. Nobody can change your sexual orientation. You have the right to be who you want to be. Of cour...

Túlkamálið: Fjárlög vs. Mannréttindi

Mynd
Allir þátttakendur sumarbúðanna í Svíþjóð 2017.  Við systur sátum við morgunverðarborðið og vorum að ræða námið okkar. Hún þurfti að skrifa helling af ritgerðum í stjórnmálafræði á meðan mér fannst ég alltaf í hlutaprófum í viðskiptafræði. Þá mundi ég að ég þyrfti að klára eitt verkefni í lögfræði, en þrátt fyrir að viðskiptalögfræði væri ein af uppáhalds greinum mínum var ég ekki mjög spennt fyrir henni þennan morgun.                 „Til hvers að læra lögfræði?“ spurði ég sjálfa mig upphátt og vísaði til þess að ég tapaði máli gegn ríkinu og Samskiptamiðstöð nýlega.                 Systir mín dæsti en benti mér á að lögfræði gæti nú alveg komið að einhverju gagni. Ég samsinnti henni, en bætti þó við að ef til vill kæmi lögfræðin ekki að gagni þegar kæmi að mannréttindum.         ...

Daufblinda alla leið

Mynd
Sænski listamaðurinn og rithöfundurinn Torbjörn Svensson er með Usher II. Mynd fengin að láni úr einkasafni. Ég er daufblind. Ég missti heyrnina í kringum 5 ára aldur en fékk kuðungsígræðslu 7 ára þannig að ég heyri smá með hjálp heyrnartækis. Sjónin hefur alltaf verið slæm, en hún fór þó versnandi með árunum, fimm ára var  ég fjarsýn, 8 ára sjónskert og í dag er ég lögblind. Ég sé enn eitthvað, en þó aðeins úr meters fjarlægð skýrt auk þess sem sjónsviðið er eins og út úr klósettpappírsrúllu. Þrátt fyrir að vera daufblind, fannst orsök þessarar tvöföldu fötlunar  ekki fyrr en ég var 15 ára. Lengi vel töldu læknarnir að ég væri með Usher, en að lokum leiddi DNA-greining í ljós að ég væri með BVVL, sem er afar sjaldgæfur taugahrörnunarsjúkdómur. En hvað er daufblinda? Hvað veldur daufblindu? Og hvernig getur daufblint fólk haft samskipti. Hvað er daufblinda? Daufblinda er samþætt sjón- og heyrnarskerðing. Daufblinda getur verið annaðhvort síðbúin eða meðfædd eft...

Umræðan um starfsgetumat: Ef þú getur gert 9 armbeygjur áttu að vinna 90% starf

Mynd
Hvað er að frétta? Já, alveg rétt, Alþingi var að hefjast á ný eftir sumarið og svo datt ríkisstjórnin bara í sundur. Slaugan klórar sér nú í hausnum yfir öllu sem er að gerast í íslenskri pólitík. Það er nefnilega það að pólitík hefur mun meiri áhrif á okkur öll en margir halda. Það er Alþingi sem sker út um hvort fólk fái mannsæmandi heilbrigðisþjónustu, geti sótt sér menntun og geti lifað sjálfstæðu lífi. Alþingi setur lög sem hafa áhrif á líf okkar og það er hlutverk ríkisstjórnarinnar að framkvæma þau. Slaugu langar nú að ræða um áform um svokallað starfsgetumat. Starfsgetumat  er m.a. skilgreint sem heildrænt mat á líkamlegri, andlegri og félagslegri getu einstaklingsins í því skyni að veita honum einstaklingsmiðaða endurhæfingu og draga úr ,,vinnuletjandi“ þáttum, hvað svo sem það nú þýðir. Með matinu er geta viðkomandi til að afla eigin tekna metin og miðað að því að virkja hann enn frekar. En hvað er  starfsgeta ? Eftir því sem Slaugan kemst næst ...