Baráttan við bakið
Hryggjarskekkja (e. scoliosis) er eitthvað sem margir kannast við. Það er eðlilegt að vera með örlitla skekkju, svo lengi sem hún fer ekki yfir fjörutíu gráður. Ef skekkjan fer yfir þau mörk getur hún haft heilsuspillandi áhrif og þá þarf að athuga með hana. Ég var bara krakki þegar fyrst fór að örla á hryggjarskekkju hjá mér. Í kjölfarið var ég send í röntgen-myndatöku. Fyrstu myndirnar staðfestu smá skekkju, en ekkert sem læknirinn taldi alvarlegt. Eftir það hef ég verið send nokkrum sinnum í viðbót í röntgen til að fylgjast með bakinu. Það eru nefnilega margir með minn sjúkdóm sem fá slæma hryggjarskekkju, en það er ekki vitað fyrir víst hvers vegna. Tilgátur eru uppi um að líkami okkar hafi ekki nægilegan styrk til að halda hryggnum uppi og að taugakerfið spili þar inn í, en það hefur þó ekki verið almennilega sannað svo ég viti til. Sjúkra- og iðjuþjálfarar hafa haft auga með mér í gegnum árin, kennt mér rétta líkamsbeitingu og útvegað mér ýmis hjálpartæki á bo...